A link to set a new password will be sent to your email address.

Við notum vefkökur m.a. til að greina umferð um vefinn, til að bæta upplifun notanda á síðunni eins og kemur fram í skilmálum vefsins.

Smelltu hér fyrir neðan ef þú ert nýr viðskiptavinur eða ert viðskiptavinur sem hefur ekki ennþá skráð sig á síðunni.
Innskrá

HANDVERKSKLÚBBURINN

Meðlimum í Handverksklúbbnum er gert hærra undir höfði með ýmsum hætti. Með skráningu sinni eru þeir líka að staðfesta vilja sinn um góð viðskipti sem og tíðar heimsóknir, hvort heldur í verslun okkar, námskeið eða í netverslun okkar. Vilji okkar er að þeir sem vilja eiga stöðug viðskipti við okkur, velja okkur t.d. umfram erlendar netverslanir, að þeir fái það endurgoldið með bestu kjörum á vörum og þjónustu.

Aðildin veitir strax frá upphafi betra verð á öllum vörum okkar og getur aðildin borgað sig uppí fyrstu viðskiptum. Þegar fram í sækir og klúbbmeðlimir hafa náð ákveðnum massa munum við bjóða upp á sérstakar uppákomur fyrir meðlimi og útgáfu fréttabréfs.